18.11.2007 | 10:25
Hjá Sameinuðu þjóðunum
Þar tókust á bandaríski fulltrúinn Ronald Godard og utanríkisráðherra Kúbu Pérez Roque. Sá bandaríski hélt því fram að viðskiptabannið snerti aðeins Bandaríkin og Kúbu og ætti ekki að vera á dagskrá SÞ. Hinn síðarnefndi taldi það hafa haft bein áhrif í að minnsta kosti 30 öðrum löndum. Nýtt er að aðgerðir bandaríska fjármálaráðuneytisins á sviði alþjóðlegra bankaviðskipta trufla greiðslur og samskipti kúbanskra fjármálastofnana við umheiminn.
Viku fyrr undirbjó George Bush málflutning fulltrúa síns með tilkynningu um ýmsar ráðstafanir. Hann vildi að ríkisstjórnir greiddu í Frelsissjóð sem fjármagnar andstöðuhópa á Kúbu. Auk þess boðaði hann stuðning við að tölvuvæða frjáls félagasamtök og trúarhópa, og veitingu námsstyrks til kúbanskra námsmanna. Þetta sagði Roque bráðfyndið, á Kúbu væru 600 klúbbar sem veittu ókeypis aðgang að internetinu og tvær milljónir notfærðu sér þá á hverju ári. Þar væru 65 háskólar þar sem 730.000 kúbanskir háskólanemar stunda nám auk 30.000 háskólanema frá öðrum löndum á námsstyrk.
Meðan þessu fór fram fengu nokkrir bandarískir athafnamenn fangelsisdóma fyrir að ferðast til Kúbu: Victor Vázquez fékk tveggja ára óskilorðsbundið fangelsisdóm og kona hans skilorðsbundinn fyrir samsæri um að rjúfa ferðabannið, og David Margolis tvö ár á skilorði fyrir að þykjast fara í kirkjulegum erindum til Kúbu.
Um bloggið
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða VÍK Vináttufélag Íslands og Kúbu
- RSS RSS - Straumur frá Heimasíðu Vináttufélags Íslands og Kúbu
- Free for the five Frelsum fimm menningana
- Eldri Fréttir Gamla síðan
- Skráning í VÍK Skráning í VÍK
- Vinnuferd til Kubu - 50 ára byltingarafmælis Brigada Vinnuferd til Kubu - 50 ara byltingarafmaelis vinnuferd.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
auk þess sem kostnaður við viðskitabannið er tllin ´´i milljurðum dollara fyrir Kúbu
benedikt (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 17:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.