8.1.2012 | 20:28
Einstakur dómsúrskurđur - einstök ó-réttarhöld
René González, einn „fimmmenninganna fá Kúbu“, var látinn laus eftir 13 ára fangelsisvist í október sl. Ţann 16. september hafđi átt sér stađ sá einstaki atburđur ađ dómari úrskurđanđi ađ González skyldi ekki vísađ úr landi eins og venja er međ menn sem hafa erlendan ríkisborgararétt eđa tvöfaldan eins og hann hefur, heldur er honum gert ađ afplána reynslulausn í Flórida. González á engan ćttingja ţar og eiginkona hans fćr ekki vegabréfsáritun til ţess ađ heimsćkja hann frekar en undanfarin ár, međan hann sat í fangelsi. González er búin ađ afplána 13 af 15 ára dómi en ţarf ađ halda skilorđ i 3 ára áđur en hann fćr ađ fara heim.
Félagar González eru enn í bandarískum fangelsum, en ţeir fengu allir harđa dóma ţar í landi fyrir ađ fylgjast međ undirbúningi hryđjuverkaárása á Kúbu og vara viđ ţeim. Eiginkona Gonzáles hefur ekki fengiđ vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og ţví ekki séđ mann sinn í bráđum 15 ár sem hann hefur veriđ í haldi. Dóttir ţeirra Irma González hefur ferđast um og talađ máli föđur síns. Hún heimsótti Ísland á síđasta ári.
Sjá viđtal á sjónvarpsstöđinni X-iđ
Amnesty Inernational fjallađi um mál fimmmenninganna í ársskýrslu sinni 2011 og hafa samtökin auk fjölmargra málsmetandi ađila gagnrýnt ađ međferđ mála fimmmenninganna skyldi vera í svo óvinsamlegu umhverfi sem Flórída. Í skýrslunni er fjallađ um máliđ undir yfirskriftinni „Óréttlát réttarhöld“, međal annars um ađ bandarísk stjórnvöld greiddu blađamönnum leynilega fyrir skrif um fimmmenningana sem yrđu til ţess ađ grafa undan málsvörn ţeirra.
Bloggar | Breytt 10.1.2012 kl. 09:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2011 | 12:07
Vinnu og vináttuferđ til Kúbu 18. desember 2011 til 7. janúar 2012
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2011 | 12:06
Yfirlýsing ráđstefnu norrćnna vináttufélaga Kúbu (á ensku)
We demand an end to the double standards and hypocrisy of the U.S. government and urge them to immediately release the Cuban Five. Instead they must put the real terrorists in prison. They are the ones who have committed a series of terrorist attacks aimed at Cuba and yet they are free to walk the streets of Miami.
We will not rest until justice is done and the Cuban Five return to their homeland!
Gothenburg, Sweden, June 19th, 2011
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2011 | 15:59
Heimilisofbeldi á Kúbu og bakgrunnur kvenna sem fyrir ţví verđa
Ţeir sem vilja frćđast um ţetta efni eru velkomnar í spjall á kaffi Haití (í bláu húsunum viđ gömlu höfnina í Reykjavík) fimmtudaginn 12. maí kl. 17-18.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2011 | 19:45
Fréttabréf VÍK mars 2011 er komiđ út
Bloggar | Breytt 18.6.2011 kl. 19:38 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2011 | 12:42
Mál "Kúbumannanna fimm" -- 31. mars 2011
Irma González frá Kúbu talar máli föđur síns og fjögurra annarra sem hafa af pólitískum ástćđum hlotiđ ţunga dóma í Bandaríkjunum. Réttarhöldin yfir ţeim Gerardo Hernández, Antonio Guerrero, Ramón Labańino, Fernando González og René González hafa veriđ fordćmd alţjóđlega, en ţeir hafa nú setiđ á tólfta ár í bandarískum fangelsum, sjá umfjöllun hér fyrir neđan. Irma talar einnig máli móđur sinnar og annarar konu sem fá ekki ađ heimsćkja eiginmenn sína. Fjölskyldurnar og ađrir stuđningsmenn hafa aflađ víđtćks stuđnings, en kunnir talsmenn mannréttinda, stjórnmálamenn og listamenn, ţar á međal Nóbelsverđlaunahafar, hafa hvatt til ađ mennirnir verđi leystir úr haldi.
Irma Gonzales fjallar um máliđ á opinberum fundi 31. mars kl. 19.30 í sal MÍR, Hverfisgötu 105 í Reykjavík.
Irma González á Youtube: London 2010
Bloggar | Breytt 4.5.2011 kl. 19:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 15:45
Videó međ Danny Glover og áskorun á forseta BNA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 13:19
Penn og del Toro kalla eftir lausn kúbverskra njósnara (mbl.is)
Bloggar | Breytt 7.12.2010 kl. 18:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2010 | 16:52
Norrćn vináttuferđ til Kúbu
Skipulagđar vinnu- og vináttuferđir á vegum vinuáttufélaga á Norđurlöndum til Kúbu eru farnar árlega, oftast í seinni hluta desember. VÍK skipuleggur ekki slíkar ferđir sérstaklega, en ađstođar og veitir milligöngu fyrir ţá sem hafa áhuga á ađ fara í ferđina. Athugiđ ađ heildarfjöldi ţátttakenda í hvert skipti er takmarkađur og ţeim sem hafa áhuga á ađ fara ţví ráđlagt ađ hafa samband međ góđum fyrirvara.
Dagskrá ferđa er kynnt međ 2-3 mánađa fyrirvara, en dćmi um dagskrá má skođa međ ţví ađ smella á linkinn hér fyrir neđan.
Stjórn VÍK
Bloggar | Breytt 20.2.2011 kl. 12:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2010 | 23:29
Óhróđur um Kúbu í fjölmiđlum
Eftir Benedikt Haraldsson og Gylfa Pál Hersi
Fyrir skömmu bergmálađi í fjölmiđlum alţjóđlega óhróđur bandarísku ráđastéttarinnar sem beint er gegn byltingunni á Kúbu. Hún hefur herjađ á Kúbu međ rógsherferđum í ţau 50 ár sem eru liđin frá ţví ađ spilltri ráđastétt landsins var stökkt á flótta og landsmenn endurheimtu eigur sínar frá bandarískum auđhringjum og byrjuđu ađ skipuleggja samfélagiđ ađ sinni vild og í sína ţágu. Byltingin var gerđ af ţorra íbúa landsins og gildir ţađ enn um stefnu ţeirra sem fara međ stjórn landsins.
Ţađ nýjasta í pressunni eru mótmćli hvítklćddra kvenna á Kúbu og dauđi manns sem hafđi veriđ dćmdur til fangelsisvistar. Fjölmiđlar hér á landi eru sjaldnast eftirbátar fjölmiđla annarra landa hvađ ţetta áhrćrir, ţótt eldgos og rannsóknarskýrsla hafi yfirgnćft annađ undanfariđ. Ţannig birtir Fréttablađiđ 20. mars síđastliđinn eina furđufréttina: „Andófsmennirnir handteknu eru 75 og sitja allir inn í fangelsi. Ţeir voru handteknir ţegar stjórn Fidels Castro barđi niđur mótmćlaöldu, sem stjórnin sagđi vera runna undan rifjum Bandaríkjanna. Einn andófsmannanna, Orlando Zapata Tamayo, lést í síđasta mánuđi eftir langt hungurverkfall.“ Frétt svipađs eđlis var lesin í fréttatíma útvarps.
Umrćddur Zapata var handtekinn nokkrum sinnum á árunum 1993-2002 vegna líkamsárása, innbrota og ţjófnađa, m.a. árásar međ sveđju; ástćđur sem áttu ekkert skylt viđ stjórnmál. Áriđ 2004 var hann dćmdur í ţriggja ára fangelsi. Dómurinn var ţyngdur talsvert á hćrra dómsstigi, međal annars vegna ţess ađ hann réđst á starfsmann fangelsisins. Í desember s.l. fór Zapata í hungurverkfall og erlendir fjölmiđlar lýstu ţví sem „baráttu fyrir mannréttindum á Kúbu“. Hann hafđi sett fram kröfur um ađ fá síma, eldunarađstöđu og sjónvarp í klefann sinn.
Zapata lést í febrúar. Allt var reynt til ađ bjarga honum og var hann fluttur á bestu sjúkrahús landsins. Fjölskylda Zapata, stjórnvöld og heilbrigđisstarfsfólk reyndi ađ telja honum hughvarf. Ţađ gerđi hins vegar enginn úr röđum „andófsmanna“. Ţeirra áherslumál var ađ gera Zapata ađ pólitískum baráttumanni án ţess ađ hann ćtti nokkra slíka sögu. Hann tilheyrđi aldrei andófsmönnunum 75 eins og Fréttablađiđ stađhćfđi.
Raúl Castro forseti Kúbu minnti nýlega á ađ frá ţví Fulgencio Batista var steypt af stóli í byltingunni 1959: „höfum viđ ekki myrt neinn, viđ höfum ekki beitt neinn pyntingum, enginn hefur veriđ tekinn af lífi án dóms og laga.“ Ennfremur, ađ bandaríska herstöđin í Guantánamo vćri eini stađurinn á Kúbu ţar sem beitt hafi veriđ pyntingum á undanförnum árum.
Hvítklćddu konurnar sem fjölmiđlarnir tala um hefur veriđ hampađ mikiđ í Bandaríkjunum og ţćr njóta stuđnings ţađan. Konurnar stóđu fyrir ögrandi mótmćlum eftir andlát Zapata. Ţćr eru skyldmenni svokallađra 75 menninga, andstćđinga byltingarinnar á Kúbu sem voru handteknir í mars 2003. Af ţeim sitja 53 enn í fangelsi. Ţeir voru ákćrđir fyrir ađ taka viđ fé og fyrir samvinnu viđ bandaríska stjórnarerindreka í Havana í ţví skyni ađ knésetja byltinguna. Á ţví leikur ekki vafi. George Bush, ţáverandi forseti Bandaríkjanna útnefndi James Cason 2003 sem yfirmann hagsmunaskrifstofu Bandaríkjanna á Kúbu (Bandaríkin rufu stjórnmálasambandiđ skömmu eftir byltinguna og ţar er hagsmunaskrifstofa en ekki sendiráđ). Cason lýsti ţví ţegar yfir opinberlega ađ hann myndi ferđast um landiđ til ţess ađ styrkja andstöđuhópa gegn byltingunni.
Spyrja má hvađa rétt bandarískir stjórnarerindrekar hafi til ţess ađ ferđast um Kúbu í ţví skyni ađ skipuleggja og fjármagna hópa sem ćtlađ er ađ koma stjórnvöldum frá. Telur einhver líklegt ađ slíkt háttalag yrđi látiđ óátaliđ í öđrum löndum?
Amnesty International gagnrýnir enn Kúbu fyrir handtökur og opinber réttarhöld. Ţó viđurkenndu samtökin ađ 75 menningarnir, „hefđu tekiđ viđ fé og/eđa tćkjabúnađi frá bandarískum stjórnvöldum í ţví augnamiđi ađ taka ţátt í ţví sem stjórnvöld litu á sem niđurrifsstarfsemi og skađlega Kúbu.“ Ţótt Amnesty telji kúbönsk stjórnvöld takmarka „tjáningar- og félagafrelsi“ viđurkenna samtökin engu ađ síđur ađ kúbönsk stjórnvöld sjái „öllum Kúbönum fyrir helstu mannréttindunum svo sem ađgangi ađ húsnćđi, heilsugćslu og menntun.“ Amnesty sakar ekki kúbönsk stjórnvöld um pyntingar, mannshvörf eđa barsmíđar.
Afstađa Bandaríkjanna til mannréttinda fanga lýsir sér best í međferđ ţeirra á fimm kúbönskum byltingar- og ćttjarđarsinnum sem hafa setiđ í fangelsi af pólitískum ástćđum og fyrir rangar sakir á tólfta ár. Ţeir voru teknir til fanga fyrir ađ fylgjast međ hćgrisinnuđum hópi Kúbana á Flórída sem höfđu skipulagt ađför af ýmsu tagi á Kúbu međ stuđningi Bandaríkjanna. Ţeim var haldiđ í einangrun í 17 mánuđi fram ađ réttarhöldunum. Ţeir voru sakfelldir á grundvelli ákćra um „samsćri“ og hlutu gífurlega harđa dóma, ţrír ţeirra upphaflega lífstíđarfangelsi. Bandarísk stjórnvöld hafa ţráfaldlega neitađ eiginkonum tveggja baráttumannanna, Gerardo Hernández og René González, um ađ heimsćkja eiginmenn sína.
Full ţörf er á ađ taka undir ţćr kröfur ađ viđskiptabanni og ferđabanni Bandaríkjanna verđi aflétt og eđlilegu stjórnmálasambandi komiđ á til ađ almennir íbúar Bandaríkjanna hafi frelsi til ađ ferđast til Kúbu. Miklu skiptir ađ kynna málstađ og taka undir kröfur um réttlćti til handa fimmmenningunum frá Kúbu, ađ ţeir verđi látnir lausir og komist heim til lands síns og fjölskyldna.
Bloggar | Breytt 27.4.2010 kl. 20:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggiđ
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða VÍK Vináttufélag Íslands og Kúbu
- RSS RSS - Straumur frá Heimasíđu Vináttufélags Íslands og Kúbu
- Free for the five Frelsum fimm menningana
- Eldri Fréttir Gamla síđan
- Skráning í VÍK Skráning í VÍK
- Vinnuferd til Kubu - 50 ára byltingarafmælis Brigada Vinnuferd til Kubu - 50 ara byltingarafmaelis vinnuferd.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 4826
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

conting2011brignordica.doc
helgi-sigmunds
siggihara
vest1
joiragnars
raudurvettvangur
